Sporðskeri er raf- eða glussadrifinn hnífur ætlaður til að sporðskera grálúðu. Hann er felldur inn í skjólborð færibands, helst strax eftir hausara. Með því að notfæra sér sporðskurðarhníf og staðsetja hann strax eftir hausara má auka afköst og bæta vinnuaðstöðu við sporðskurð til muna.
UPPSETNING:
Okkar teymi mun annast uppsetningu á tækinu og gefa leiðbeiningar um notkun til að tryggja bestu mögulega virkni.
AUÐVELD ÞRIF:
Þetta tæki er hannað með það að leiðarljósi að þrif séu eins auðveld og þægileg eins og mögulegt er.
BESTU GÆÐI:
Allt efni og íhlutir er gerðir úr bestu mögulegum gæðum. Allar suðusamsetningar og stálhlutir eru sléttir og viðloðunarfríir.