Hringband er góð lausn í lestarrými í fiskiskipum. Bandið gengur á stórri gjörð sem hangir í lestarloftinu og kemur fiskur ofan af vinnsluþilfari niður á mitt bandið. Hægt er að snúa og lengja bandið til að fullnýta allt rýmið í lestinni.
Hentugt að nota nota fiskilyftu frá Slippnum Akureyri til að flytja fisk við stýrðar aðstæður niður á hringbandið.
UPPSETNING:
Okkar teymi mun annast uppsetningu á tækinu og gefa leiðbeiningar um notkun til að tryggja bestu mögulega virkni.
AUÐVELD ÞRIF:
Þetta tæki er hannað með það að leiðarljósi að þrif séu eins auðveld og þægileg eins og mögulegt er.
BESTU GÆÐI:
Allt efni og íhlutir er gerðir úr bestu mögulegum gæðum. Allar suðusamsetningar og stálhlutir eru sléttir og viðloðunarfríir.