Snyrtilína

DNG býður upp á snyrtilínur bæði fyrir landvinnslur og frystiskip. Snyrtilínur DNG fyrir landvinnslur henta bæði fyrir lax og hvítfisk.

Snyrtilínan er hönnuð með afköst, þrifa aðgengi og góða vinnuaðstöðu í huga.

PROMAS stýrikefi frá DNG er hægt að tengja inn á allar snyrtilínur til að fylgjast með nýtingu, afköstum o.s.frv.


UPPSETNING:
Okkar teymi mun annast uppsetningu á tækinu og gefa leiðbeiningar um notkun til að tryggja bestu mögulega virkni.

AUÐVELD ÞRIF:
Þetta tæki er hannað með það að leiðarljósi að þrif séu eins auðveld og þægileg eins og mögulegt er.

BESTU GÆÐI:
Allt efni og íhlutir er gerðir úr bestu mögulegum gæðum. Allar suðusamsetningar og stálhlutir eru sléttir og viðloðunarfríir.

 

DNG by Slippurinn hefur mikla reynslu í hönnun og uppsetningu framleiðslulína og að aðlaga lausnir búnaði sem fyrir er í verksmiðjunni. Við bjóðum upp á hönnun og teikningar fyrir nútímalegar verksmiðjur þar sem hagkvæmni og nýting eru í hávegum höfð. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar að sérsniðnum lausnum.