Búnaður
Lestarkerfi
Bætir vinnuaðstöðu og eykur afköst og öryggi á sjó
Slippurinn Akureyri hannar og smíðar lestarkerfi fyrir stór ferskfiskskip og frystitogara.
Lestarkerfi ferskfisks samanstendur af kerunaraðstöðu á vinnsluþilfari, lestarlyftu og sjálfvirku magasíni í lest fyrir ker.
Fiskilyfta
Lágmarkar fall á fiski
Fall á fiski er hin mesta meinsemd og hefur Slippurinn Akureyri framleitt lausnir til að lágmarka fallið og bæta flutning á milli þilfara. Lyfturnar eru hannaðar til að koma böndum á lóðréttan flutning fisks á milli þilfara í skipum.
Fiskilyfturnar eru til bæði stakstæðar og sem hluti af sérsmíðuðum lúgukarmi á milli vinnsluþilfars og lestar.
Ker
Margvíslegar lausnir í boði
Slippurinn Akureyri býður upp á mismunandi gerðir af kerum. Hægt er að nota þau við ýmsar aðstæður t.d. undir meðafla, sem safnker, fyrir blæðingu eða til kælingar á afla.
Reimalyftuker er nýjasta hönnun Slippsins en kerið er mjög þrifavænt og viðhaldsþörf er í lágmarki þar sem slitfletir eru fáir.
Aðgerðaraðstaða
Góð meðferð aukaafurða
Slippurinn býður upp á aðgerðaraðstöður fyrir skip og landvinnslur.
Hringkeyrsla fisks á bandi sem er hentugt þegar verið er að stærðar- eða tegundarflokka afla. Einnig til hefðbundin aðgerðarbönd.
Færibönd
Sterkbyggð og auðveld í þrifum
Slippurinn Akureyri framleiðir færibönd fyrir matvælaiðnað sem mætir ströngustu kröfum þegar kemur að álagi og þrifum.
Útlit og eiginleika má aðlaga að nánast hverju sem er.
Aukahlutir
Ýmis sérsmíði
Við bjóðum upp á smíði á ýmsum aukahlutum fyrir fiskiskip og matvælavinnslur.
Vinnupallar, vettlingarþurrkarar, sporðskerar, rennur, þvottagreiður, hreinsilúgur og mannop eru dæmi aukahluti sem Slippurinn framleiðir.