Ryðfrí smíði

Ryðfrí smíði
Ryðfría deild Slippsins býður upp á framleiðslu á ýmsum búnaði fyrir matvælavinnslur ásamt viðhaldi og viðgerðum. Algengt er að Slippurinn bjóði upp á alhliða skipaþjónustu ásamt breytingar eða viðhald á vinnsludekki á þeim skipum sem koma til okkar.
Einnig býður Slippurinn upp á sérsmíði og aðlögum við okkar þjónustu að viðskiptavinum hverju sinni.

Húsakostur og tækjabúnaður
Húsakostur ryðfríu deildar Slippsins er 800 fermetrar.
Deildin vel tækjum búið.
- Vatnskurðarvél
- Beygjuvél
- Sax
- Bandsög
- Vals
- Glussapressa
- Súluborvél