Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í
styrk- og stöðugleikamati félagsins fyrir árið 2011. Þetta er annað árið í röð þar sem Slippurinn Akureyri ehf. er
þar á meðal.
Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 245 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki. Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi.
Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:
Að hafa skilað ársreikningum til RSK 2008 til 2010
Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
Eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2008 - 2010
Að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2008 til 2010
Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo
Listi yfir þau fyrirtæki sem stóðust styrk- og stöðugleikamatið er fánlegur hjá Creditinfo. Hann inniheldur allar fjárhagsupplýsingarnar sem eru taldar upp hér að ofan, almenn netföng fyrirtækjanna, póstföng fyrirtækjanna og netföng framkvæmdastjóra.
www.creditinfo.is






