Slippurinn Akureyri ehf.

Guðmundur verðlaunaður fyrir afburðaárangur Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík hélt sjöttu verðlaunahátíð sína til heiðurs 23 nýsveinum sem luku

Gumundur verlaunaur fyrir afburarangur

Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík hélt sjöttu verðlaunahátíð sína til heiðurs 23 nýsveinum sem luku burtfararprófi í iðngreinum með afburðaárangri á árinu 2011. Hátíðin var haldin í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík laugardaginn 4. febrúar síðastliðinn. 
Guðmundur H. Gústavsson starfsmaður Slippsins á Akureyri fékk silfurverðlaun fyrir afburðarárangur í rennismíði á hátíðinni. Guðmundur útskrifaðist frá Iðnskólanum í Hafnarfirði eftir að hafa tekið megnið af grunnnáminu í VMA. Guðmundur var á námssamning hjá Helga Stefánssyni hjá Slippnum Akureyri ehf.


mynd : Odd Stefan
Eins og sjá má á myndinni sem tekin var við þetta tækifæri, voru þeir félagar alsælir með árangurinn. Helgi Stefánsson Meistari Guðmundar til vinstri á myndinni og Guðmundur Hinrik Gústavsson til hægri.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf